Eyðublöð þjóðskrár
Eyðublöðin eru á pdf formi og hægt er að fylla þau út á skjánum, nema annað sé tekið fram.
Þrjár leiðir eru til að skila eyðublöðunum
- Netskil (sjá upplýsingar um rafræn skjalaskil á Island.is). Þessi eyðublöð eru merkt með tákninu
. Vistið skjalið á tölvunni og smellið hér til að skila. Undirritun er óþörf, en í stað hennar þarf viðkomandi að auðkenna sig með rafrænu skilríki á debetkorti eða veflykli Ríkisskattstjóra.
- Bréfapóstur. Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í pósti á Þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
- Bréfasími. Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í bréfasíma 569 2949. Gildir ekki fyrir umsóknir um kennitölur fyrir erlenda ríkisborgara.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 569 2900.
Nokkur eyðublaðanna eru til á ensku - click here to see forms available in English.
Nánar um netskil
Flutningur
Kennitala fyrir erlendan ríkisborgara
- Beiðni um skráningu EES- eða EFTA-útlendings sem ætlar að dvelja lengur en 3 mánuði (ekki útfyllanlegt á skjánum)
- Beiðni um skráningu og úthlutun kennitölu til erlends ríkisborgara
Kjörskrá
Beiðnir um nafnbreytingar til Þjóðskrár Íslands
- Beiðni um breytta ritun nafns án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu (maður 18 ára og eldri)
- Beiðni um breytta ritun nafns án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu (barn yngra en 18 ára)
- Beiðni um breytingu á kenninafni manns 18 ára og eldri
- Beiðni um breytingu á kenninafni barns yngra en 18 ára
- Beiðni um breytingu ættarnafns í millinafn samkvæmt 7. gr. mannanafnalaga (maður 18 ára og eldri)
- Beiðni um breytingu ættarnafns í millinafn samkvæmt 7. gr. mannanafnalaga (barn yngra en 18 ára)
- Beiðni um að ófeðrað barn verði kennt til stjúpföður síns
- Beiðni um að ófeðrað barn verði kennt til afa síns